Keflavík sigraði Hauka með 15 stiga mun

Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, ræðir við TaKesha Watson.
Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, ræðir við TaKesha Watson. Eggert Jóhannesson

Keflavík sigraði í Powerade-bikarkeppni kvenna í körfuknattleik í dag en liðið lék til úrslita gegn Haukum sem hafði titil að verja í fyrirtækjabikarkeppni KKÍ. Keflavík skoraði 95 stig gegn 80 stigum Hauka og það er ljóst að Haukar ná ekki að endurtaka leikinn frá því á síðustu leiktíð þar sem að liðið vann alla titla sem í boði voru á tímabilinu. <p>
Kiera Hardy leikmaður Hauka meiddist á ökkla í síðari hálfleik og eftir það var á brattann að sækja fyrir Hauka en staðan í hálfleik var 48:44 fyrir Keflavík.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert