Jón Arnór og félagar skrefi frá úrslitum

Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. mbl.is/Ferraro Mimmo

Jón Arnór Stefánsson skoraði 2 stig í 85:78-sigri Lottomatica Roma á útivelli gegn Air Avellino í undanúrslitum ítölsku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik í gær. Roma lék á útivelli í gær og getur með sigri í næsta leik á heimavelli tryggt sér sæti í úrslitum um ítalska meistaratitilinn.

Skotnýting íslenska landsliðsmannsins hefur oft verið betri en í leiknum í gær. Hann tók sex þriggja stiga skot en hitti ekki úr einu þeirra. Annað af tveimur tveggja stiga skotum fór ofaní. Hann tók fjögur fráköst. David Hawkins var stigahæstur í liði Roma með 19 stig og Erazem Lorbek skoraði 14.

Tölfræði leiksins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert