Boston Celtics vann sannfærandi sigur, 98:88, á Los Angeles Lakers í fyrsta leik liðanna í lokaúrslitum NBA deildarinnar í nótt. Leikur liðanna var lengst af jafn, en sterkur varnarleikur Celtics skóp fyrst og fremst þennan sigur.
Fyrirliði Boston, Paul Pierce, var borinn af leikvelli til búningsherbergja í seinni hálfleik, en sneri fljótlega aftur til leiks og var lykilmaður í sigri liðsins. Þetta atvik bætti því enn einum kaflanum í litríkri sögu liðanna í gegnum árin.
Los Angeles hafði frumkvæðið í byrjun og hafði forystuna í hálfleik, 51:46. Hálfleikurinn einkenndist af mikilli baráttu beggja liða. Ekki endilega góðum leik, enda bæði lið að þreifa fyrir sér eins og oft gerist þegar lið hafa ekki mæst í langan tíma.
Um miðjan þriðja leikhlutann, þegar leikurinn var enn á járnum, meiddist Paul Pierce, framherji Celtics, á hné eftir samstuð við samherja sinn Kendrick Perkins. Pierce var borinn af leikvelli og metinn af læknum heimaliðsins, en eftir að aðeins tæpar tvær mínútur voru liðnar af leiktíma kom kappinn aftur til leiks, rétt eins og í bestu Hollywood kvikmynd. Hann skoraði strax tvær þriggja stiga körfur á 22 sekúndna kafla og náði fjögurra stiga forystu, 75:71, fyrir Boston á þessum tíma.
„Það var frábært að sjá hann koma aftur inn á völlinn því við vorum áhyggjufullir þegar hann lá kveinandi á gólfinu og hélt um hnéð. Ég var hreykinn af okkar mönnum á þessu tímabili því þeir brugðust réttilega við," sagði Doc Rivers, þjálfari Celtics.
Pierce bjóst við hinu versta þegar hann meiddist.„Ég fann eitthvað gefa eftir og ég hélt að ég hefði slitið eitthvað í hnénu. Ég fann mikið til og gat ekki hreyft liðamótin í fyrstu. Eftir að læknarnir rannsökuðu liðamótin gat ég farið að ganga um búningsherbergið, svo ég bað þá um hnéhlíf og vildi óður fara aftur í leikinn," sagði Pierce í leikslok.
Pierce hitti úr öllum sex skotum sínum í seinni hálfleik og skoraði 22 stig, eftir að hafa aðeins skorað þrjú stig í fyrri hálfleik.
Þetta reyndist vera mikill vendipunktur í leiknum, því Lakers liðið virtist aldrei ná að brjóta niður sterkan varnarleik Celtics eftir atvikið, þrátt fyrir mikla baráttu. Liðið virtist ávallt vera að klóra í bakkann, án þess að geta náð völdum á leiknum og á síðustu mínútum leiksins innsiglaði heimaliðið sigurinn með yfirveguðum leik.
Það var að venju frábær varnarleikur Boston sem skóp sigur liðsins, enda er hann aðalsmerki liðsins. Ég sá leik þessara liða í deildarkeppninni í vetur og það sem vakti athygli mína var hversu illa Lakers gekk að skora í kringum körfuna.
Boston pakkar hreinlega í vítateiginn og gefur stökkskot í staðinn gegn Lakers. Leikmenn Lakers hittu aðeins úr 42% skota sinna (33% í seinni hálfleiknum) og sem dæmi um slaka hittni þá rötuðu aðeins níu af 26 skotum Kobe Bryant í körfuna í leiknum. Það þarf augljóslega að breytast í næsta leik liðanna ef Lakers ætlar sér sigur. 88 stig munu ekki duga gegn Boston á heimavelli.
Kevin Garnett byrjaði þennan leik með miklum látum og skoraði hverja körfuna af fætur annarri. Hann kólnaði hinsvegar mikið í seinni hálfleiknum, en var stigahæstur Celtics með 24 stig og 13 fráköst.
Ray Allen var einnig traustur með 19 stig og átta fráköst. Þegar þeir Pierce, Allen og Garnett eiga allir góðan leik er nánast hægt að bóka sigur gegn Los Angeles í þessari leikseríu, rétt eins og við höfðum bent á hér fyrr í vikunni.
Los Angeles átti góðan fyrri hálfleik, en slök hittni í þeim síðari gerði út um væntingar liðsins um sigur hér. Lakers skoraði aðeins 37 stig í síðari hálfleiknum, sem ekki eru meistarataktar. Bryant var stighæstur Lakers að vanda með 24 stig og þeir Pau Gasol og Derek Fisher settu báðir 15 stig.
„Ég fékk fullt af auðveldum færum, en ég hitti einfaldlega ekki úr þeim. Ef ég fæ aftur jafn mikið af góðum færum og í kvöld, þá verða hlutirnir öðruvísi hjá okkur," sagði Bryant við blaðafólk eftir leikinn.
Það var nokkuð um leikgleði hjá Lakers í leiknum, en afleit hittni í seinni hálfleiknum varð liðin að falli. Ef Bryant og félagar ná að hitta betur í öðrum leik liðanna á morgun gæti allt breyst hér. Nú er að sjá hvort sú verður raunin.