Körfuboltalandsliðinu boðið til Litháen

Logi Gunnarsson á fullri ferð í landsleik. stækka

Logi Gunnarsson á fullri ferð í landsleik. mbl.is/Ómar

Íslenska karlalandsliðinu í körfuknattleik hefur verið boðið til Litháen í júlí til að leika tvo leiki gegn hinu öfluga landsliði heimamanna sem býr sig undir keppni á Ólympíuleikunum í Peking.

Litháar verða með sitt sterkasta lið, nema hvað Zydrunas Ilgauskas, leikmaður Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni, missir af leikjunum vegna meiðsla. Leikið er í Vilnius 13. og 15. júlí en auk þess mun íslenska landsliðið æfa í Litháen við mjög góðar aðstæður.

Í frétt á vef Körfuknattleikssambands Íslands segir að ferðin sé liður í frekara samstarfi landanna en Litháar hafi lýst yfir áhuga á að aðstoða íslenskan körfubolta með ýmsum hætti í framtíðinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is