Stórsigur KR-inga og Snæfell skellti Þór

Jason Doursseau skoraði 22 stig fyrir KR-inga í kvöld.
Jason Doursseau skoraði 22 stig fyrir KR-inga í kvöld. hag / Haraldur Guðjónsson

KR-ingar unnu stórsigur á nýliðum Breiðabliks, 108:72, í Iceland Express-deildinni en liðin áttust við í Smáranum í kvöld. KR-ingar höfðu mikla yfirburði en staðan eftir fyrsta leikhluta var, 35:19, og í hálfleik var 37 stiga munur á liðunum, 67:30.

Kristján Sigurðsson var stigahæstur Blika með 16 stig og Nemanja Sovic skoraði 13.

Hjá KR-ingum var Jason Dourissau stigahæstur með 22 stig, Pálmi Sigurgeirsson skoraði 15 og þeir Ellert Arnarson og Skarphéðinn Ingason voru með 13 stig hver.

Tölfræði úr leik Breiðabliks og KR.

Í Stykkishólmi unnu heimamenn í Snæfelli öruggan sigur á Þórsurum, 88:71.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert