Bikarmeistaralið Snæfells úr leik

Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í liði KR gegn bikarmeistaraliði …
Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í liði KR gegn bikarmeistaraliði Snæfells. mbl.is/Ómar

KR sigraði Snæfell á útivelli í 32-liða úrslitum Subway bikarkeppninnar í körfuknattleik karla í kvöld, 79:73. Snæfell hafði titil að verja í þessari keppni. Sigurður Þorvaldsson skoraði 26 stig fyrir heimaliðið en Jakob Sigurðarson skoraði 29 stig fyrir KR.

Tölfræði leiksins.

Haukar, sem leika í næst efstu deild, gerðu sér lítið fyrir og lögðu úrvalsdeildarlið Breiðabliks 83:75 í Hafnarfirði.  Sveinn Ómar Sveinsson skoraði 20 stig fyrir Hauka. Rúnar Ingi Erlingsson skoraði 21 stig fyrir Breiðablik.

Í Grindavík burstaði lið ÍR heimaliðið úr ÍG, 123:67. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert