Stórslagur í Grindavík í kvöld
16-liða úrslit Subway-bikarsins í körfuknattleik í karla- og kvennaflokki hefjast í kvöld með sjö leikjum. Í karlaflokki verða þrjár viðureignir og m.a. mætast og A -g B-lið Grindavíkur í Röstinni, íþróttahúsi Grindavíkur klukkan 21, strax að loknum leik Grindavíkur og Vals í kvennaflokki.
Einnig verða tveir leikir á heimavelli KR, DHL-höllinni. Annarsvegar mætast KR og Fjölnir og hins vegar KRb og Haukar. Báðir leikirnir eru í karlaflokki og hefst viðureign KR og Fjölnis klukkan 19, en hin síðari tveimur stundum síðar.
Auk viðureignar Grindavíkur og Val þá mætast Skallagrímur og Þór Akureyri í kvennaflokki í Borgarnesi kl. 19.15. Þá fær Njarðvík liðsmenn KR í heimsókn og í Stykkishólmi sækja Íslandsmeistarar Keflavíkur leikmenn Snæfells heim. Tveir síðastnefndu leikirnir hefjast kl. 19.15.






