Grindvíkingar fá liðsstyrk í körfunni

Nick Bradford í leik með Keflavík.
Nick Bradford í leik með Keflavík. mbl.is/Sverrir

Grindvíkingar hafa samið við Nick Bradford um að hann leiki með körfuknattleiksliðinu út þessa leiktíð.

Bradford lék með Keflavík tímabilið 2004-2005 og er nú væntanlegur í fyrramálið samkvæmt því er segir á karfan.is

Grindavík tekur á móti Njarðvík annað kvöld og vonast Grindvíkingar eftir að Bradford geti verið með í þeim leik.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert