Fannar: Kom í ljós hve breiðan hóp við erum með

Fannar Ólafsson fyrirliði KR tekur á móti Íslandsbikarnum.
Fannar Ólafsson fyrirliði KR tekur á móti Íslandsbikarnum. mbl.is/Golli

Fannar Ólafsson fyrirliði KR tók á móti Íslandsbikarnum eftir sigur liðsins á Grindavík 84:83 í Frostaskjóli í kvöld.

Gífurlega spenna ríkti á lokamínútunum og Grindvíkingar fengu tækifæri til þess að tryggja sér sigurinn sem þeir nýttu ekki. Voru taugarnar ekki þandar? „Taugarnar voru svo sem fínar. Maður var sallarólegur því ég hafði trú á því að við myndum vinna. Þetta hefur verið rosaleg sería enda eru Grindvíkingar búnir að spila eins og englar. En ég tel að við séum með betra lið. Við lentum í miklum villuvandræðum í kvöld sem hafði mikil áhrif á okkur. En nú kom í ljós hve breiðan hóp við erum með. Strákar sem hafa spilað minna en fastamennirnir í vetur komu inn á og stóðu sig mjög vel.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert