Sean Burton skoraði 55 stig og 16 þriggja stiga körfur

Sean Burton leikmaður Snæfells. stækka

Sean Burton leikmaður Snæfells. mbl.is/Ómar

Sean Burton, leikstjórnandi Snæfells, kunni vel við sig gegn svæðisvörn Hamars í 16 liða úrslitum Subway-bikars karla í körfuknattleik í kvöld. Bandaríkjamaðurinn skoraði 55 stig í 130:75 sigri liðsins og skoraði hann 16 þriggja stiga körfur úr aðeins 20 tilraunum.

Burton lék aðeins í 32 mínútur af alls 40 og hann var með 100% skotnýtingu í tveggja stiga skotum sínum og 100% vítanýtingu. Hlynur Bæringsson skoraði 12 stig, tók 18 fráköst og gaf 9 stoðsendingar í liði Snæfells. Andre Dabney skoraði 29 stig fyrir Hamar.

Í Borgarnesi hafði Fjölnir betur gegn 1. deildar liði Skallagríms, 84:63. Christopher Smith skoraði 25 stig fyrir Fjölni. Ægir Steinarsson náði þrefaldri tvennu hjá Fjölni, skoraði 12 stig, tók 10 fráköst og gaf 11 stoðsendingar. Silver Laku skoraði 20 stig fyrir Skallagrím og Hafþór Gunnarsson skoraði 17.

Hreggviður Magnússon skoraði 23 stig fyrir ÍR og Nemanja Sovic skoraði 22 í 93:86 sigri liðsins gegn KFÍ á Ísafirði. Pance Iliveski skoraði 29 stig fyrir KFÍ.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar


finnur.is