Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 6.2.2010
| 9:42
Helgi hafði betur gegn Jakobi
Jakob Sigurðarson skoraði 18 stig fyrir Sundsvall Dragons sem tapaði á útivelli 78:76 gegn Helga Magnússyni og félögum úr Solna í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í gær. Helgi skoraði 5 stig fyrir Solna sem er með 40 stig í fjórða sæti deildarinnar en Sundsvall er í þriðja sæti með 46. Plannja er í öðru sæti með 48 og Norrköping er efst með 54 stig.
Helgi Már og Jakob Örn voru liðsfélagar á síðustu leiktíð með KR en þeir léku báðir með yngri flokkum KR.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






