Meistaralið Lakers tapaði á heimavelli

Jarvis Hayes og Brook Lopez voru svekktir eftir tapið gegn Boston en þetta var 45. ... stækka

Jarvis Hayes og Brook Lopez voru svekktir eftir tapið gegn Boston en þetta var 45. tapleikur liðsins. Reuters

Tíu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Meistaralið LA Lakers tapaði á heimavelli gegn Denver, 113:126, í uppgjöri efstu liða í vesturdeildinni. Orlando tapaði óvænt á heimavelli gegn Washington þar sem að Caron Butler tryggði Washington sigur.  Minnesota lagði Dallas á útivelli. Taphrina New Jersey heldur áfram en liðið gaf eftir á lokakaflanum gegn Boston á útivelli. New Jersey hefur tapað 45 leikjum og unnið aðeins 4.

Washington vann upp 21 stiga forskot Orlando frá því í fyrsta leikhluta. Butler skoraði 31 stig fyrir Washington en Dwight Howard skoraði 20 og tók 18 fráköst fyrir Orlando.

Eddie House skoraði öll 10 stigin  sín fyrir Boston í fjórða leikhluta en Boston var einu stigi undir eftir þrjá leikhluta.

Dirk Nowitzki skoraði 21 stig fyrir Dallas en hann fékk ekki að byrja inná þar sem hann mætti of seint á skotæfingu liðsins fyrir leikinn.  Minnesota hafði tapað 13 síðustu leikjum gegn Dallas.

Úrslit frá því í nótt.

Indiana – Detroit 107:83
Orlando  - Washington  91:92
Boston – New Jersey 96:87
New York – Milwaukee 107:114
Atlanta – Chicago 91:81
Memphis – Houston 83:101
New Orleans – Philadelphia 94:101
Dallas – Minnesota 108:117
Sacramento – Phoenix 102:114
LA Lakers – Denver 113:126

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is