LeBron James skoraði 47 stig gegn New York

LeBron James. stækka

LeBron James. Reuters

Ellefu leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í gær. LeBron James skoraði 47 stig og þar af 35 stig í fyrri hálfleik í 113:106 sigri Cleveland gegn New York. Hann gaf 8 stoðsendingar, tók 8 fráköst og hitti úr 6 af alls 12 þriggja stiga skotum sínum. Cleveland hefur nú unnið 11 leiki í röð og er liðið með besta árangur allra liða í deildinni 41/11.  

Sænski landsliðsmaðurinn Jonas Jerebko skoraði 20 stig fyrir Detroit í 99:92 sigri liðsins gegn New Jersey Nets. Jerebko skoraði úr öllum 9 skotum sínum utan af velli. Þetta var 14. Tapleikur Nets á útivelli í röð en liðið hefur aðeins unnið 1 útileik á tímabilinu og alls eru sigrarnir 4 en tapleikirnir 46.

Kobe Bryant lék ekki með LA Lakers í sigurleik gegn Portland vegna meiðsla í ökkla. Bryant hafði leikið 235 leiki í röð fyrir félagið.  

Úrslit frá því í nótt:

Charlotte – New Orleans 99:104
Cleveland – New York 113:106
Detroit – New Jersey 99:92
Chicago – Miami 95:91
Minnesota – Memphis 109:102
Houston – Philadelpia 95:102
Milwaukee – Indiana 93:81
Utah – Denver 116:106
Portland – LA Lakers 82:99
Golden State – Oklahoma 95:104
LA Clippers – San Antonio 81:98
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar


finnur.is