Snæfell í bikarúrslit eftir öruggan sigur í Keflavík

Jón Ólafur Jónsson var heitur hjá Snæfell í dag og skoraði 23 stig.

Jón Ólafur Jónsson var heitur hjá Snæfell í dag og skoraði 23 stig. mbl.is/Brynjar Gauti

Keflavík og Snæfell áttust við í Keflavík í undanúrsiltum Subwaybikarsins í körfuknattleik karla í dag. Snæfell vann öruggan sigur 90:64 og tryggði sér sæti í bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöll. Andstæðingar þeirra verða annað hvort ÍR eða Grindavík. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

40. mín: LEIK LOKIÐ. Snæfell sigraði 90:64. Frábær frammistaða hjá Snæfell og Keflvíkingar náðu ekki að setja verulega spennu í leikinn í síðari hálfleik. 

30. mín: Staðan er 48:63 fyrir Snæfell fyrir síðasta leikhlutann. Gestirnir úr Stykkishólmi eru að spila gríðarlega vel og virðast vera komnir með annan fótinn í Laugardalshöllina.  Jón Ólafur Jónsson hefur verið sjóðandi heitur hjá Snæfelli og hefur skorað 20 stig.

20. mín: Staðan er 29:46 fyrir Hólmarar að loknum fyrri hálfleik. Keflvíkingar þurfa að komast í réttan gír í síðari hálfleik ætli þeir sér að komast í úrslitaleikinn. Snæfell er annálað fyrir öflugan varnarleik og það getur orðið þrautinni þyngri hjá Keflavík að vinna upp mikið forskot gegn þeim 

Jón Nordal Hafsteinsson leikmaður Keflvíkinga og Pálmi Freyr Sigurgeirsson leikmaður Snæfells sem er ekki leikfær ...

Jón Nordal Hafsteinsson leikmaður Keflvíkinga og Pálmi Freyr Sigurgeirsson leikmaður Snæfells sem er ekki leikfær vegna meiðsla. mbl.is/Árni

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is