Grindavík mætir Snæfelli í úrslitaleik bikarsins
Eftir Kristján Jónsson, kris@mbl.isGrindavík og Snæfell mætast í úrslitum í Subwaybikarnum í körfuknattleik karla. Grindavík sigraði ÍR 91:78 í kvöld í síðari undanúrslitaleiknum en Snæfell vann Keflavík í gær. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
Stigahæstir:
Grindavík: Páll Axel Vilbergsson 29, Ómar Örn Sævarsson 12.
ÍR: Nemanja Sovic 28, Michael Jefferson 20.
40. mín: LEIK LOKIÐ. Grindvíkingar sigruðu 91:78 og mæta Snæfelli í úrslitaleik í Laugardalshöll.
36. mín: Staðan er 83:66 fyrir Grindavík. Bikardraumur ÍR-ingar virðist vera úr sögunni að þessu sinni. Munurinn er 17 stig og leikstjórnandinn Michael Jefferson er farinn af velli með 5 villur á bakinu.
33. mín: Staðan er 73:64 fyrir Grindavík. Páll Axel virðist vera á góðri leið með að skjóta Grindvíkinga í úrslitaleikinn. Hann skoraði fyrstu 5 stigin í síðasta leikhlutanum og hefur skorað 25 stig í leiknum.
30. mín: Staðan er 64:60 fyrir Grindavík fyrir síðasta leikhlutann. ÍR-ingum er ekki alls varnað, þeir eru að halda í við Grindvíkinga á útivelli án Hreggviðs Magnússonar sem meiddist eftir nokkrar sekúndur og hefur ekkert spilað. Þorleifur Ólafsson var hins vegar klár í seinni hálfleikinn hjá Grindavík þrátt fyrir bakmeiðsli. Grindvíkingar hafa hins vegar ekki teflt Brenton Birmingham fram en hann er á skýrslu í fyrsta skipti í langan tíma.
28. mín: Staðan er 59:55 fyrir Grindavík. ÍR-ingum virðist vera að takast að hleypta leiknum upp. Þeir eru búnir að minnka muninn niður í 4 stig og Friðrik Ragnarsson þjálfari Grindavíkur tekur leikhlé.
25. mín: Staðan er 59:48 fyrir Grindavík. ÍR-ingar eru að spila betri vörn í siðari hálfleik en hafa ekki nýtt tækifærin í sókninni. Eiríkur Önundarson og Steinar Arason eru til að mynda ískaldir og munar um minna þegar hvorki Hreggviðs né Sveinbjarnar Claessen nýtur við.
20. mín: Staðan er 50:41 fyrir Grindavík að loknum fyrri hálfleik. ÍR-ingar náðu áhugaverðri rispu undir lok fyrri hálfleiks og hafa hleypt meiri spennu í leikinn þó þeir eigi enn nokkuð í land. Michael Jefferson og Nemanja Sovic eru að bera uppi sóknarleik ÍR en þeirra höfuðverkur er hvernig þeir eiga að stoppa sóknarleik Grindvíkinga. Páll Axel Vilbergsson er stigahæstur heimamanna með 14 stig og Sovic hefur skorað annað eins fyrir ÍR. Skammt er stórra högg á milli því Þorleifur Ólafsson fór meiddur af velli hjá Grindavík eftir að hafa fengið slæma byltu. Virtist kvalinn og hefur væntanlega lent illa á bakinu.
15. mín: Staðan er 41:25 fyrir Grindavík og ÍR-inga taka leikhlé. Þeir hafa ekki fundið svör við öflugum sóknarleik heimamanna. Á meðan svo er þá er ólíklegt að ÍR-ingar snúi leiknum sér í hag því Grindvíkingar hafa verið að skapa sér góð skotfæri.
12. mín: Staðan er 31:16 fyrir Grindvíkinga sem eru heitir fyrir utan þriggja stiga línuna. Guðlaugur Eyjólfsson og Páll Axel byrjuðu annan leikhluta á sitt hvorri þriggja stiga körfunni. Hreggviður hefur ekki komið aftur inn á hjá ÍR og þetta gæti orðið erfitt kvöld fyrir Breiðhyltinga.
10. mín: Staðan er 21:13 fyrir Grindavík að fyrsta leikhluta loknum. ÍR-ingum tókst að minnka muninn niður í þrjú stig 16:13 en Páll Axel skoraði þriggja stiga flautukörfu á lokasekúndu leikhlutans.
6. mín: Staðan er 12:5 fyrir Grindavík. Heimamenn eru mun sterkari í upphafi leiks og eru duglegir við að koma boltanum inn á Darrel Flake en ÍR-ingar eiga engan leikmanna til þess að dekka Flake með góðu móti.
3. mín: Staðan er 8:0 fyrir Grindavík. Einkennilegt atvik varð strax í upphafi leiks en Hreggviður Magnússon besti leikmaður ÍR fór meiddur af velli eftir örfáar sekúndur. Virðist hann hafa meiðst á ökkla eftir að hafa farið í uppkastið gegn fyrrum samherja sínum Ómari Erni Sævarssyni.
Kynnir leiksins er að kynna leikmenn liðanna. Brenton Birmingham er á leikskýrslu hjá Grindavík í fyrsta skipti í langan tíma en hann hefur átt við meiðsli að stríða.






