Met hjá Helenu og TCU

Helena Sverrisdóttir í leik með TCU. stækka

Helena Sverrisdóttir í leik með TCU. mbl.is/TCU

Helena Sverrisdóttir landsliðskona í körfuknattleik heldur áfram að gera það gott í bandarísku háskóladeildinni. Lið hennar TCU frá Dallas vann stórsigur á Air Force 77:47 um helgina og var það nítjándi sigurleikur TCU í röð á heimavelli. Er það jöfnun á mestu sigurgöngu í sögu skólans.

TCU tapaði síðast á heimavelli í janúar 2009. Helena var stigahæst í liði TCU með 17 stig en setti auk þess persónulegt met í háskóladeildinni með því að stela boltanum 6 sinnum af andstæðingunum. Helena var auk þess með frábæra hittni í leiknum. Hún hitti 7 af 8 skotum sínum innan teigs og 3 af 3 þriggja stiga skotum sínum.

Næsti leikur TCU verður nk miðvikudag en þá mætir liðið Utah háskólanum í Salt Lake City. Leikurinn verður sýndur um öll Bandaríkin í beinni útsendingu hjá CBS College Sports sjónvarpsstöðinni. Hróður Helenu hefur borist víða í háskólaboltanum í Bandaríkjunum og mun varla minnka eftir sjónvarpsleikinn í Utah. kris@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar


finnur.is