Burton: Æfingarnar skila sér í leikjum sem þessum

Leikmenn Snæfells fagna bikarmeistaratitlinum í leikslok. stækka

Leikmenn Snæfells fagna bikarmeistaratitlinum í leikslok. mbl.is/Golli

mbl.is Eftir Kristján Jónsson, kris@mbl.is

 Sean Burton leikstjórnandi Snæfells var kjörinn maður bikarúrslitaleiksins í dag þegar Snæfell sigraði Grindavík 92:81. Burton vann vel fyrir útnefningunni því hann skoraði 36 stig og setti ófá þriggja stiga skotin niður af löngu færi.

„Mér líður frábærlega. Það er ekki mikið meira hægt að gera annað en að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Vonandi tekst okkur að halda áfram að spila eins og við gerðum í dag og nota þetta til þess að gíra okkur upp fyrir úrslitakeppnina,“ sagði Burton í samtali við mbl.is eftir að hafa handfjatlað bikarinn á sínu fyrsta tímabili á Íslandi. Burton sagði umgjörðina í kringum bikarúrslitaleikinn hafa höfðað til sín. 

„Með þessa umgjörð og þessa áhorfendur þá kemst maður auðvitað í gírinn. Ég gætti þess þó að láta þetta ekki trufla einbeitinguna og ég hafði gaman af því að spila,“ sagði Burton. 

Burton setti niður 5 þriggja stiga skot og mörg hver langt utan af velli. Hann virðist geta hitt nánast öllum skotum þegar hann er í stuði.  Burton segir það einfaldlega vera ávöxt mikils erfiðis. „Maður hefur oft eytt sumarmánuðunum inni í sal að skjóta þúsundum skota. Þau skot og sú vinna skilar sér í leikjum sem þessum. Ég reyni jafnframt að hafa trú á sjálfum mér þegar inn á völlinn er komið,“ sagði Burton ennfremur.

Fjallað er um leikinn í átta síðna íþróttablaði Morgunblaðsins á mánudaginn. 

Sean Burton í baráttu við Þorleif Ólafsson í leiknum í dag.

Sean Burton í baráttu við Þorleif Ólafsson í leiknum í dag. mbl.is/Golli

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is