„Þetta er fáránlega góð tilfinning“

Leikmenn og forráðamenn Snæfells fagna sigri. stækka

Leikmenn og forráðamenn Snæfells fagna sigri. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Ingi Þór Steinþórsson þjálfari Snæfells fagnaði sigri í bikarkeppni KKÍ í fyrsta skipti í dag þegar lærisveinar hans lögðu Grindvíking að velli 92:81 í Laugardalshöll.

„Þetta er fáránlega góð tilfinning. Það væri náttúrlega bara hroki ef maður væri ekki ánægður með þetta. Við vorum að leggja frábært lið að velli og unnum ennþá sterkara lið í undanúrslitum þannig að við erum virkilega búnir að vinna fyrir þessu,“ sagði Ingi í samtali við mbl.is þegar sigurinn var í höfn. Ingi er á sínu fyrsta ári í Stykkishólmi og gæti því vart byrjað betur hjá Snæfelli en að vinna bikarinn á sínu fyrsta tímabili með liðið. „Hólmarar eru gríðarlega stoltir af öllu starfinu. Stjórnin er frábær og allir sem eru í kringum starfið. Þetta hefur því verið mjög gaman og þessi sigur gerir starfið bara ennþá betra,“ sagði Ingi ennfremur.

Mbl.is lék forvitni á að vita hvernig Snæfell hefði farið að því að halda aftur af landsliðsmanninum Páli Axel Vilbergssyni sem aðeins skoraði 4 stig í leiknum. „Við höfðum tvo leikmenn til þess að skiptast á að valda hann. Siggi Þorvalds og Berkis stóðu sig báðir mjög vel í því. Páll Axel er frábær leikmaður og við náðum að loka nokkuð vel á hann. Heilt yfir þá var liðsvörnin til staðar. Við misstum aðeins af Gulla Eyjólfs í þriggja stiga skotunum þegar menn voru að hjálpa of mikið að valda aðra leikmenn en liðsvörnin var annars mjög góð.“

Fjallað verður um leikinn í átta síðna íþróttablaði Morgunblaðsins á mánudaginn. 

Leikmenn Snæfells fagna bikarmeistaratitlinum í leikslok.

Leikmenn Snæfells fagna bikarmeistaratitlinum í leikslok. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is