Þorleifur: Betra liðið vann í dag

Þorleifur Ólafsson reynir að stöðva Sean Burton í leiknum í dag. stækka

Þorleifur Ólafsson reynir að stöðva Sean Burton í leiknum í dag. mbl.is/Golli

mbl.is Eftir Kristján Jónsson, kris@mbl.is

Þorleifur Ólafsson átti ágætan leik fyrir Grindavík í bikarúrslitunum gegn Snæfelli í dag. Það dugði þó ekki til því bikarinn fór í Stykkishólm. Þorleifur sagði Grindvíkinga hafa verið talsvert frá sínu besta.

„Við gerðum bara ekki það sem við lögðum upp með því þeir fengu allt of mikið af opnum þriggja stiga skotum. Auk þess voru þeir bara miklu ákveðnari en við og þeir voru tilbúnir í leikinn. Þeir hirtu fleiri lausa bolta en við og tóku fleiri fráköst. Það skilaði þessu fyrir þá. Við töpuðum á móti góðu liði. Ef við hefðum spilað okkar besta leik þá hefðum við unnið en við gerðum það ekki og því fór sem fór. Betra liðið vann í dag,“ sagði Þorleifur í samtali við mbl.is að leiknum loknum.

Fjallað er um leikinn í átta síðna íþróttablaði Morgunblaðsins á mánudaginn.   

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar


finnur.is