Friðrik Ragnarsson: Burton fór illa með okkur

Baráttan í algleymingi í bikarúrslitaleiknum í gær. stækka

Baráttan í algleymingi í bikarúrslitaleiknum í gær. mbl.is/Golli

Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindvíkinga, sagði í samtali við mbl.is að leikmenn hefðu farið út fyrir leikskipulagið í bikarúrslitaleiknum gegn Snæfelli í gær. Snæfell sigraði 83:77.

„Við töpuðum af því að við fórum út úr leikskipulaginu. Ef við hefðum hangið innan leikskipulagsins þá hefðum við fagnað sigri. Það er bara svo einfalt. Það voru of margir minna leikmanna sem fóru að taka sjálfstæðar ákvarðanir í trássi við það sem þeir áttu að gera. Við mættum í leikinn með ákveðið leikskipulag og fylgdum því ekki eftir. Þess vegna töpuðum við leiknum,“ sagði Friðrik í samtali við mbl.is í leikslok.

Spurður um frammistöðu Sean Burton sagði Friðrik hann hafa verið yfirburðarmann á vellinum. „Hann er gríðarlega góður leikmaður. Hann hitti öllu á tímabili og var að skjóta 2-3 metra fyrir utan þriggja stiga línuna. Hann fór illa með okkur í þessum leik og verðskuldaði að vera valinn maður leiksins. Hann var yfirburðarmaður á vellinum,“ sagði Friðrik.

Fjallað er um leikinn í átta síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar


finnur.is