Grindvíkingar sóttu 2 stig í Garðabæinn

Jovan Zdravevski leikmaður Stjörnunnar. stækka

Jovan Zdravevski leikmaður Stjörnunnar. mbl.is/Kristinn

Stjarnan og Grindavík áttust við í Iceland Express deild karla í körfuknattleik í Garðabæ klukkan 19:15. Grindavík sigraði 81:76 í jöfnum leik en Stjarnan var yfir í hálfleik 36:32.

Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

Stigahæstir:

Stjarnan: Jovan Zdravevski 22, Justin Shouse 21.

Grindavík: Páll Axel Vilbergsson 24, Darrel Flake 18.

40. mín: LEIK LOKIÐ. Grindvíkingar lönduðu sigri. Páll Axel innsiglaði sigurinn á vítalínunni. Jovan Zdravevski fékk tækifæri til þess að jafna leikinn í stöðunni 76:79 en hitti ekki úr þriggja stiga skoti.

40. mín: Staðan er 76:72 fyrir Grindavík. 35 sekúndur eftir og Stjarnan er með boltann. Teitur Örlygsson þjálfari Stjörnunnar tekur leikhlé.

35. mín: Staðan er 68:68. Síðustu fimm mínúturnar ættu að verða spennandi.  Darrel Flake og Ómar Örn Sævarsson eru báðir með fjórar villur hjá Grindavík og Magnús Helgason hjá Stjörnunni.

30. mín: Staðan er 59:56 fyrir Stjörnuna fyrir síðasta leikhlutann.  Jovan Zdravevski er stigahæstur hjá Stjörnunni með 18 stig og Djordje Pantelic hefur tekið 9 fráköst. Hjá Grindavík er Darrel Flake með 16 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar. 

25. mín: Staðan er 48:45 fyrir Stjörnuna. Leikurinn er algerlega í járnum þessa stundina. Grindvíkingar hafa ekki verið heitir fyrir utan og eru farnir að leita meira að Darrel Flake undir körfunni.

20. mín: Staðan er 36:32 fyrir Stjörnuna að loknum fyrri hálfleik. Frumkvæðið hefur verið Garðbæinga í öðrum leikhluta en Grindvíkingar hafa ekki hleypt þeim langt frá sér. Hittnin er ekki góð eins og tölurnar bera með sér og ef annað liðið fer í stuð og fær skotin niður þá ætti eftirleikurinn að vera auðveldur. 

15. mín: Staðan er 28:21 fyrir Stjörnuna. Garðbæingar hafa slitið sig frá Grindvíkingum með góðum kafla í upphafi annars leikhluta. Friðrik Ragnarsson þjálfari Grindavíkur tekur leikhlé. 

10. mín: Staðan er 15:16 fyrir Grindavík.  Hittni leikmanna hefur verið slök í fyrsta leikhlutanum og eins og eitthvað slen sé yfir mönnum. Úr rætist vonandi í öðrum leikhluta því hér eru tvö skemmtileg lið að mætast.

5. mín: Staðan er 8:6 fyrir Stjörnuna. Leikurinn fer rólega af stað og liðin spila hægt til þess að byrja með. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is