Haukar komnir í úrslitakeppnina

Heather Ezell hjá Haukum sækir að körfu Grindavíkur í leiknum í kvöld. stækka

Heather Ezell hjá Haukum sækir að körfu Grindavíkur í leiknum í kvöld. mbl.is/Ómar

Haukar eru komnir í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna í körfu eftir 81:74 sigur á Grindavík í síðari leik liðanna um lausa sætið. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is

Haukar höfðu betur, 88:82 um helgina er liðin mættust fyrsta sinni en það lið sem fyrr sigrar í tveimur leikjum er komið í úrslitakeppni fjögurra liða.

76:74 42,5 sekúndur eftir og Haukar eiga bónusvítaskot. Kiki Lund setti niður flottan þrist fyrir Hauka og kom þeim fyrir á nýjan leik fyrir nokkrum sekúndum.

63:60 Haukar komnir yfir enn og aftur en liðin skiptast á um að hafa forystuna. 5,37 eftir af leiknum og mikið fjör framundan ef að líkum lætur.

55:57 Spennan heldur áfram. Haukarnir vour komnir með nokkra forystu en Grinddvíkingar voru sterkir á lokakafla leikhlutans, sem nú er á enda, og gerði 12 stig gegn þremur.

46:40 Grindvíkingar taka leikhlé enda hefur sóknin ekki gengið upp hjá þeim það sem af er þriðja leikhluta, en af honum eru nú liðnar tæpar þrjá mínútur.

41:38 Kominn hálfleikur í nokkuð skemmtilegum og fjörugum leik. Haukar naðu forystunni rétt undir lok leikhlutans eftir að Grindvíkingar höfðu verið skrefinu á undan.  Stigahæst hjá Haukum er Kiki Kund með 14 stig og Heather Ezell er með 10. Hjá Grindavík er Michele DeVault með 15 og Petrúnella Skúladottir 13, en hún er kominn með þrjár villur.

23:23 Haukar búnir að ná áttum og hafaf gert fimm þriggja stiga körfur og virðast í miklu stuði eftir að Henning tók leikhlé snemma leiks. Allt þó í járnum ennþá og ekki ólíklegt að það verði svo til loka. Fínn körfubolti sem liðin eru að leika. Fyrsta leikhluta lokið.

4:11 Grindvíkingar byrja betur og hafa gert þrjár þriggja stiga körfur á fyrstu þremur mínútunum. Henning þjálfari Hauka tók leikhlé enda leist honum ekkert á leik liðsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is