Keflavík slapp með skrekkinn

Birna Valgarðsdóttir, leikmaður Keflavíkur. stækka

Birna Valgarðsdóttir, leikmaður Keflavíkur. mbl.is/Golli

Keflavík vann Snæfell, 112:105, í framlengdum leik í 1. umferð úrslitakeppninnar um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfuknattleik í Stykkishólmi í kvöld. Keflavík vann þar með 2:0 í einvígi liðanna og mætir Hamri í undanúrslitum.

45. mín. Leik lokið og Keflavík hafði betur í framlengingunni. Lokatölur 105:112. Bryndís Guðmundsdóttir skoraði 37 stig fyrir Keflavík, Birna Valgarðsdóttir 31 og Kristi Smith 29. Sharell Hobbs gerði 42 stig fyrir Snæfell og Gunnhildur Gunnarsdóttir 15.

40. mín. Jafnt, 96:96, eftir venjulegan leiktíma og það er framlengt í Hólminum. Sharell Hobbs jafnaði með 3ja stiga körfu fyrir heimaliðið þegar 12 sekúndur voru eftir og hefur gert 39 stig í leiknum. Keflavík nýtti ekki færi í lokin og því er framlengt.

36. mín. Keflavík hefur náð undirtökunum í Stykkishólmi eftir harðan slag og er yfir, 78:82, þegar fjórar mínútur eru eftir. Sharell Hobbs er með 32 stig fyrir Snæfell en Birna Valgarðsdóttir 28 stig fyrir Keflavík.

32. mín. Snæfell var áfram yfir eftir þriðja leikhluta, 65:64. Keflavík skoraði fyrstu fjögur stigin í fjórða leikhluta en nú er s taðan 68:68.

25. mín. Snæfell er áfram með undirtökin þegar þriðji leikhluti er hálfnaður og staðan er 60:56. Sharell Hobbs hefur nú gert 25 stig fyrir Snæfell en Bryndís Guðmundsdóttir 20 fyrir Keflavík.

20. mín. Snæfell er með forystu í hálfleik, 46:45. Sharell Hobbs hefur gert 20 stig fyrir Hólmara en Birna Valgarðsdóttir hefur gert 16 stig fyrir Keflavík og Bryndís Guðmundsdóttir 15.

18. mín. Snæfell hefur snúið  blaðinu við í öðrum leikhluta, skorað 19 stig gegn 7 og staðan er orðin 42:36.

10. mín. Keflavík er yfir eftir fyrsta leikhlutann, staðan er 23:29.

Keflavík vann leik liðanna á föstudagskvöldið, 95:82, á heimavelli sínum og er 1:0 yfir. Sigri liðið í kvöld er það komið í undanúrslit en annars verður oddaleikur í Keflavík á miðvikudagskvöldið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is