Cleveland fyrst í 50 sigrana

David Gibson hjá Cleveland reynir að ná boltanum af Roger Mason, leikmanni Spurs, í viðureign ... stækka

David Gibson hjá Cleveland reynir að ná boltanum af Roger Mason, leikmanni Spurs, í viðureign liðanna í nótt. Reuters

Án stjörnunnar LeBrons James náði Cleveland Cavaliers að knýja fram sigur á San Antonio Spurs, 97:95, í nótt og varð þar með  fyrsta liðið á þessu tímabili til að hala inn 50 sigurleiki í NBA-deildinni í körfuknattleik.

Það var ekki nóg með að Cleveland léki án James, sem er meiddur á ökkla, heldur er tröllið Shaquille O'Neal frá keppni í sex vikur enn vegna uppskurðar á þumalfingri. Ekki bætti úr skák að Antawn Jamison varð að hætta keppni snemma í þriðja hluta í nótt vegna eymsla í hné.

„Við erum þrjóskir og eigum marga nothæfa leikmenn," sagði þjálfarinn Mike Brown eftir leikinn. Þrátt fyrir stutta þátttöku var Jamison stigahæstur ásamt Mo Williams en þeir gerðu 17 stig hvor. Argentínumaðurinn Manu Ginobili skoraði 38 stig fyrir Spurs.

Úrslitin í nótt:

Cleveland - San Antonio 97:95
New York - Atlanta 99:98
Memphis - New Jersey 107:101
Minnesota - Dallas 112:125
New Orleans - Golden State 135:131

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is