Helena leikmaður ársins í Mountain West deildinni

Helena Sverrisdóttir og Jeff Mittie þjálfari TCU. stækka

Helena Sverrisdóttir og Jeff Mittie þjálfari TCU. mbl.is/TCU

Íslenska landsliðskonan í körfubolta, Helena Sverrisdóttir, var í gær valin leikmaður ársins í Mountain West deildinni í bandaríska háskólakörfuboltanum. Helena er aðeins þriðji leikmaðurinn í sögu TCU háskólaliðsins sem fær þessa viðurkenningu en lið hennar TCU sigraði í Mountain West deildinni.

Jeff Mittie þjálfari TCU er þjálfari ársins í MW-deildinni en Helena var að sjálfsögðu valin í fimm manna úrvalslið deildarinnar ásamt  liðsfélaga sínum Emely Carter. Þetta er annað árið í röð þar sem Helena er valin í fimm manna úrvalslið deildarinnar.

Helena skoraði 13,6 stig að meðaltali í vetur, tók 6,6 fráköst, gaf 5,3 stoðsendingar og stal boltanum 2,3 að meðaltali í hverjum leik. Hún var á meðal 15 efstu í MW-deildinni í fjórum tölfræðiþáttum, hún var önnur á lista yfir flestar stoðsendingar, þriðja í fráköstum og níunda í stigaskorun.

TCU leikur á föstudaginn fyrsta leikinn í úrslitakeppninni í Las Vegas. Ekki er enn ljóst hvaða lið verður mótherji TCU sem komst beint í undanúrslit keppninnar með því að sigra í MW-deildinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is