„Bið stuðningsmenn innilegrar afsökunar“

Magnús Gunnarsson í leik gegn Keflavík. stækka

Magnús Gunnarsson í leik gegn Keflavík. mbl.is/Skúli Sigurðsson

mbl.is Eftir Skúla Sigurðsson, sport@mbl.is
Magnús Gunnarsson leikstjórnandi Njarðvíkinga var hneykslaður á frammistöðu liðsins þegar mbl.is ræddi við hann að loknum tapleiknum gegn erkifjendunum í Keflavík.

„Ég vil bara biðja stuðningsmenn Njarðvíkur innilegrar afsökunar á því að trufla þá þetta fína fimmtudagskvöld. Það var líklega eitthvað fínt í sjónvarpinu sem þeir hefðu betur horft á. VIð mættum ekki tilbúnir hvort sem það er stress, spenna eða hreinlega bara hræddir. Við vorum búnir að horfa á bikarleikinn sem við spiluðum hér síðast sem við töpuðum. Og að sjálfsögðu ætluðum við ekki að láta það gerast aftur. En þeir ná að hrekja okkur út úr okkar leik og við vorum ragir þegar við setjum upp okkar sóknarkerfi. Það fóru leikmenn að reyna að redda þessu svo uppá eigin spítur en þá töpuðum við bara boltanum. Við verðum að láta boltann ganga þó svo að þeir pressi á okkur. Ætli þessi og síðasti leikur okkar hér í Keflavík séu ekki okkar slökustu leikir í vetur,“ sagði Magnús Þór Gunnarsson í samtali við mbl.is en hann var atkvæðamestur Njarðvíkinga með 15 stig.

Fjallað er um leikinn í íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is