Er enn í hálfgerðu sjokki

Ingvaldur Magni Hafsteinsson og Tómas Tómasson hjá Fjölni í vörn gegn Steinari Arasyni hjá ÍR ... stækka

Ingvaldur Magni Hafsteinsson og Tómas Tómasson hjá Fjölni í vörn gegn Steinari Arasyni hjá ÍR í leiknum í kvöld. mbl.is/Ómar

"Þetta var gríðarlega svekkjandi eftir að hafa verið nánast með unninn leik, og ég er enn þá í hálfgerðu sjokki," sagði Ingvaldur Magni Hafsteinsson, körfuboltamaðurinn reyndi úr Fjölni, eftir að lið hans tapaði á ótrúlegan hátt fyrir ÍR, 89:90, í úrvalsdeildinni í kvöld.

Robert Jarvis skoraði ævintýralega sigurkörfu fyrir ÍR-inga, langt utan af velli, rétt áður en leiktíminn rann út og sigur sem virtist í höfn hjá Fjölnismönnum rann þeim úr greipum.

Þetta getur farið á alla vegu hjá okkur úr þessu, ef við vinnum báða leikina sem eftir eru eigum við möguleika á sæti í úrslitakeppninni. Þetta er enn þá undir okkur komið og það er a.m.k. jákvætt", sagði Magni við mbl.is eftir leikinn.

Fjölnir er með 12 stig í 10. sæti deildarinnar, tveimur stigum meira en Breiðablik sem er í fallsæti, en liðin mætast einmitt í næstsíðustu umferðinni á sunnudagskvöldið. Tapi Fjölnismenn leiknum eru þeir í mikilli fallhættu, en vinni þeir, geta þeir enn komist í úrslitakeppni átta efstu liðanna.

Sjá nánari umfjöllun um leikinn í íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is