Ótrúlegur endasprettur tryggði KR sigur í Garðabæ

Justin Shouse leikstjórnandi Stjörnunnar. stækka

Justin Shouse leikstjórnandi Stjörnunnar. mbl.is/Ómar

Stjarnan og KR áttust við í Iceland Express deildinni í körfuknattleik karla í Ásgarði í Garðabæ og hófst leikurinn klukkan 19:15. KR sigraði 88:87 í leik þar sem Stjarnan hafði um tíma 24 stiga forskot.  Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

Stigahæstir:

Stjarnan: Jovan Zdravevski 22, Justin Shouse 18.

KR: Brynjar Björnsson 32, Fannar Ólafsson 18.

40. mín: LEIK LOKIÐ. KR sigraði 88:87 eftir ótrúlegan endasprett. Fannar Ólafsson skoraði síðasta stigið af vítalínunni þegar 7 sekúndur voru eftir. Á síðustu 2-3 mínútum misstu Garðbæingar boltann ítrekað og KR-ingar refsuðu með þriggja stiga körfum. Morgan Lewis var drjúgur í síðasta leikhlutanum og Brynjar Björnsson skoraði glæsilega þriggja stiga körfu og jafnaði leikinn 87:87 þegar hálf mínúta var eftir.

39. mín: Staðan er 87:84 fyrir Stjörnuna. Ótrúlegur kafli KR-inga. Teitur Örlygsson þjálfari Stjörnunnar tekur leikhlé. Stjarnan er með boltann og 1,15 mínútur eftir af leiknum. Skyndilega er hörkuspenna í leiknum. 

37. mín: Staðan er 84:74 fyrir Stjörnuna. KR-ingum hefur tekist að minnka muninn niður í 10 stig. Morgan Lewis hefur skorað 5 stig í röð fyrir KR.

34. mín: Staðan er 80:65 fyrir Stjörnuna. KR-ingum hefur tekist að ná muninum niður í 15 stig en þeir þurfa að hafa hraðar hendur ætli þeir sér að ná einhverju út úr leiknum.  Brynjar Björnsson er þeirra heitastur og hefur skorað 22 stig.

30. mín: Staðan er 76:56 fyrir Stjörnuna þegar einungis einn leikhluti er eftir. Ólafur J. Sigurðsson skoraði ævintýralega flautukörfu um leið og leiktíminn rann út í þriðja leikhluta. Stjarnan náði mest 23 stiga mun en KR-ingar náðu því niður í sautján stig áður en Ólafur svaraði. Fátt bendir til annars en að Íslandsmeistararnir tapi hér í Garðabænum eins og svo mörg önnur lið hafa gert í vetur.

25. mín: Staðan er 58:40 fyrir Stjörnuna.  KR-ingar eru ekki mikið að saxa á forskotið en þeir hafa verið duglegir að taka sóknarfráköst og þau halda þeim eiginlega inni í leiknum.

20. mín: Staðan er 49:30 fyrir Stjörnuna að loknum fyrri hálfleik. Hittni Garðbæinga hefur verið frábær í fyrri hálfleik og KR-ingar hafa ekki átt nein svör við sóknarleik þeirra. Kjartan Kjartansson setti tvær þriggja stiga körfur í öðrum leikhluta. Jovan Zdravevski er stigahæstur með 14 stig og skoraði þriggja stiga körfu á lokasekúndu fyrri hálfleiks. Í kjölfarið lenti honum og Tommy Johnson saman svo lá við slagsmálum. Samherjum þeirra tókst að ganga á milli og skakka leikinn.

14. mín: Staðan er 31:17 fyrir Stjörnuna. 14 stiga munur eftir aðeins 14 mínútna leik og Stjarnan er að sýna allar sínar bestu hliðar. Páll Kolbeinsson þjálfari KR tekur leikhlé.

10. mín: Staðan er 22:16 fyrir Stjörnuna að loknum fyrsta leikhluta.  Það er mikill kraftur í Garðbæingum og þeir náðu mest sjö stiga forskoti 17:10.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar


finnur.is