Hamar og Keflavík eigast við í undanúrslitum

Birna Valgarðsdóttir Keflavík og Guðbjörg Sverrisdóttir Hamri. stækka

Birna Valgarðsdóttir Keflavík og Guðbjörg Sverrisdóttir Hamri. mbl.is

Undanúrslit á Íslandsmóti kvenna í körfuknattleik hefjast í dag þegar Hamar tekur á móti Keflavík í Hveragerði klukkan 15. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn gegn annað hvort KR eða Haukum.

Mbl.is ræddi við þjálfara liðanna og spurði þá hvernig þeim litist á rimmuna á milli Hamars og Keflavíkur. 

Ágúst Björgvinsson þjálfari Hamars: „Mér líst hörkuvel á þetta einvígi. Ég held að þetta séu fjögur mjög jöfn lið í þessari úrslitakeppni þó fyrirfram sé KR með sterkasta liðið. Það er sama á móti hverjum við hefðu lent að við hefðum alltaf fengið sterkt lið á móti okkur í undanúrslitum. Það er því alveg eins gott að fá Keflavík eins og einhverja aðra. Það er fyrst og fremst gott að spila leik 1, 3 og 5 heima. Það er mjög jákvætt.“ 

Jón Halldór Eðvaldsson þjálfari Keflavíkur:  „Hamar er með sterkara lið en við á pappírunum. Það er bara ósköp einfalt mál. Þær eru með tvo útlendinga og fjórar landsliðskonur. Það sjá allir sem vilja sjá að Hamar er með sterkara lið á pappírunum og til þess að toppa það þá eru þau með besta þjálfarann eftir áramót. Ég myndi telja að þau séu töluvert sigurstranglegri. Við ætlum að reyna að hafa gaman að þessu og reyna að stríða þeim.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is