Hamar vann fyrstu orrustuna

Leikmenn Hamars fagna sigri á KR fyrir skömmu. stækka

Leikmenn Hamars fagna sigri á KR fyrir skömmu. Ómar Óskarsson

Hamar tryggði sér sigur í fyrsta leik sínum við Keflavík í undanúrslitum úrvalsdeildar kvenna, Iceland Express-deildinni, í körfuknattleik í íþróttahúsinu í Hveragerði í dag, 97:77. Aðeins munaði sex stigum á liðunum fyrir síðasta leikhlutann, 70:64. Liðin mætast öðru sinni í Keflavík á þriðjudagskvöld.

Vinna þarf þrjá leiki í undanúrslitum til að komast í úrslit. KR og Haukar mætast í hinu einvígi undanúrslitanna. Fyrsta viðureign þeirra verður á heimvelli KR annað kvöld kl. 19.15.

Ekkert varð úr því að fjórði leikhluti yrði spennandi. Leikmenn Hamars léku eins og þeir sem valdið hafa líkt og þeir gerðu í fyrsta leikhluta. Leikmenn Keflavíkur náðu ekki að fylgja því eftir og úr varð 20 stiga sigur Hamars.
Julia Demirer var stigahæst hjá Hamri með 25 stig. Kristrún Sigurjónsdóttir gerði 18 stig eins og Guðbjörg Sverrisdóttir.  Kristi Smith var stigahæst hjá Keflavík með 22 stig. Birna Valgarðsdóttir kom næst með 15 stig og Bryndís Guðmundsdóttir skoraði 14 stig.

Spenna er áfram í leiknum í Hveragerði. Þriðja leikhluta lauk með jafntefli, 22:22. Staðan er því 70:64, Hamri í hag þegar fjórði og síðasti leikhluti hefst. Allt stefnir í jafnan leik síðustu tíu mínúturnar.

Eftir slakan leik í fyrsta leikhluta vaknaði lið Keflavíkur heldur betur í öðrum leikhluta, ekki síst þegar á hann leið. Aðeins er sex stiga munur á liðunum í hálfleik, 48:42, Hamri í vil. Kristrún Sigurjónsdóttir og Julia Demirer hafa skorað 16 stig hvor fyrir Hamar. Stigaskorun hefur dreifst meira hjá Keflavíkurliðinu. Kristi Smith er með 10 stig, Bryndís Guðmundsdóttir níu og Birna Valgarðsdóttir átta.

Leikmenn Hamars réðu lögum og lofum í fyrsta leikhluta. Þeir voru 16 stigum yfir að honum loknum, 25:9.

Hamar byrjar leikinn betur og eftir aðeins fjórar mínútur er staðan, 10:4, heimaliðinu í vil.

Hægt er fylgjast með beinni textalýsingu með því að smella hér.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar


finnur.is