Helena og samherjar úr leik

Helena Sverrisdóttir náði sér ekki á strik í kvöld. stækka

Helena Sverrisdóttir náði sér ekki á strik í kvöld. mbl.is/TCU

Helena Sverrisdóttir og samherjar hennar í háskólaliði TCU féllu í kvöld út í undanúrslitum Mountain West háskóladeildarinnar í bandaríska körfuboltanum. Þær eiga þó möguleika á að komast bakdyraleið inní sjálfa úrslitakeppnina.

TCU mætti liði Utah, sem það hafði sigrað í báðum viðureign liðanna í deildakeppni vetrarins. Í kvöld var lið TCU hinsvegar heillum horfið og lenti á tímabili 23 stigum undir en lokatölur urðu 69:57 fyrir Utah.

Helena skoraði 12 stig í leiknum og náði sér ekki á strik í skotunum en hún hitti aðeins úr þremur af 14 tilraunum sínum utan af velli. Helena var fyrr í vikunni útnefnd leikmaður ársins í deildinni.

Þar með missti TCU af því að leika til úrslita um meistaratitil Mountain West deildarinnar á morgun, og því að vinna sér sæti í úrslitakeppni 64 bestu háskólaliða Bandaríkjanna. TCU er þó talið vera með 25. besta lið landsins og fær annað tækifæri á mánudaginn þegar tilkynnt verður hvaða lið sem ekki unnu sér beinan þátttökurétt fá að fara í úrslitakeppnina.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is