Kóngurinn sneri aftur og Cleveland vann
Paul Pierce hjá Boston á leiðinni í átt aða körfu Indiana í leiknum í nótt en Danny Granger er þar til varnar. Reuters
Með LeBron James aftur innanborðs náði Cleveland Cavaliers að knýja fram útisigur á Philadelphia 76ers, 100:95, í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.
James hafði misst af tveimur síðustu leikjum vegna ökklameiðsla en eftir skotæfingu í höllinni þremur tímum fyrir leik var ákveðið að James yrði með. Hann skoraði 23 stig, átti 10 stoðsendingar og tók 6 fráköst og gerði gæfumuninn fyrir Cleveland í sigrinum. Liðið var áfram án þeirra Shaquille O'Neal og Antawn Jamison sem eru meiddir. Andre Iguodala skoraði 30 stig fyrir 76ers.
LA Lakers lagði Phoenix Suns á útivelli, 102:96, þar sem Kobe Bryant var að vanda í aðalhlutverki. Hann skoraði 21 stig, tók 10 fráköst og átti 8 stoðsendingar. Amare Stoudamire skoraði 29 stig fyrir Phoenix og tók 16 fráköst.
Paul Pierce skoraði 20 stig fyrir Boston sem komst aftur á sigurbraut eftir tvo tapleiki í röð og vann Indiana Pacers, 122:103.
Kevin Durant skoraði 32 stig og tók 12 fráköst fyrir Oklahoma City Thunder sem vann botnliðið New Jersey Nets naumlega, 104:102. Þetta er í 36. skipti sem Durant nær 30 stigum á þessu tímabili og með því jafnaði hann 37 ára gamalt félagsmet sem Spencer Haywood setti, þá undir merkjum Seattle en Thunder er sama lið og lék um árabil sem Seattle SuperSonics.
Úrslitin í nótt:
Charlotte - LA Clippers 106:98
Philadelphia - Cleveland 95:100
Boston - Indiana 122:103
Miami - Chicago 108:95
Detroit - Washington 101:87
Memphis - New York 119:112
Minnesota - San Antonio 85:103
New Orleans - Denver 95:102
Oklahoma City - New Jersey 104:102
Milwaukee - Utah 95:87
Phoenix - LA Lakers 96:102
Sacramento - Portland 94:110






