KR og Haukar mætast í kvöld
Signý Hermannsdóttir KR og Ragna Margrét Brynjarsdóttir Haukum munu takast á í kvöld. mbl.is/Kristinn
Undanúrslitin í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik halda áfram í kvöld þegar deildameistarar KR taka á móti Íslands- og bikarmeisturum Hauka í DHL-höllinni klukkan 19:15. Þessi lið léku til úrslita um titilinn í fyrra.
Mbl.is tók púlsinn á þjálfara KR og leikstjórnanda Hauka.
Benedikt Guðmundsson þjálfari KR: „Það má segja að Haukar hafi verið heitasta liðið undanfarið. Það varð þvílík breyting á þessu liði eftir að Kiki Lund kom til þeirra. Við höfum ekki spilað við Haukana lengi en mér skilst að þetta sé orðið alla vega eitt sterkasta byrjunarliðið á landinu, með tvo útlendinga og þrjár landsliðskonur. Þetta verður því hörkurimma.“
Heather Ezell leikstjórnandi Hauka: Ég held að þetta verði skemmtileg rimma. Við höfum verið að leika góðan körfubolta upp á síðkastið. Það er orðið langt síðan að við höfum spilað gegn KR og höfum ekki mætt þeim efti að Kiki Lund gekk til liðs við okkur. Við erum klárlega með sterkara lið heldur en þegar við lékum síðast gegn KR og ég hlakka til þessarar rimmu. KR hefur átt frábært tímabil og eru með heimavallarréttinn. Þær eru því sigurstranglegri gegn öllum liðum svona fyrir fram en þegar út á völlinn er komið þá snýst þetta um hvoru megin hungrið er meira.“






