Sæt hefnd New York í Dallas

Corey Maggette hjá Golden State Warriors svífur í átt að körfu Toronto í leik liðanna ... stækka

Corey Maggette hjá Golden State Warriors svífur í átt að körfu Toronto í leik liðanna í nótt. Reuters

Eftir 13 sigurleiki í röð í NBA-deildinni í körfuknattleik var Dallas Mavericks stöðvað í nótt. Og það ekki með neinum smásigri, New York Knicks kom í heimsókn til Dallas, þar sem liðið hafði tapað í níu heimsóknum í röð, og vann risasigur, 128:94.

Sigurinn var óhemju sætur fyrir leikmenn Knicks sem voru niðurlægðir á heimavelli gegn Dallas fyrr í vetur og töpuðu þá með 50 stiga mun, hvorki meira né minna. Þar að auki hafði lið Knicks tapað 10 af síðustu 11 útileikjum sínum.

Bill Walker skoraði 23 stig og Wilson Chandler 22 fyrir Knicks en hjá Dallas var Dirk Nowitzki með 20 stig og 12 fráköst.

Luis Scola átti þó stórleik næturinnar því hann skoraði 44 stig og tók 12 fráköst fyrir Houston Rockets sem vann New Jersey Nets, 116:108.

Nýliðinn Stephen Curry skoraði 35 stig og átti 10 stoðsendingar fyrir Golden State Warriors sem sigraði Toronto Raptors, 124:112.

Dwight Howard skoraði 28 stig og tók 15 fráköst fyrir Orlando Magic sem vann Washington Wizards, 109:95, á útivelli.

Úrslitin í nótt:

Atlanta - Detroit 112:99
Washington - Orlando 95:109
Memphis - Denver 108:125
Dallas - New York 94:128
Houston - New Jersey 116:108
San Antonio - LA Clippes 118:88
Golden State - Toronto 124:112

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is