Cleveland lagði Boston sannfærandi

LeBron James hjá Cleveland brýst framhjá Marquis Daniels í Boston í leik liðanna í nótt. stækka

LeBron James hjá Cleveland brýst framhjá Marquis Daniels í Boston í leik liðanna í nótt. Reuters

Cleveland Cavaliers sigraði Boston Celtics á sannfærandi hátt, 104:93, í stórleik NBA-deildarinnar í körfuknattleik í nótt.

LeBron James var að vanda í stóru hlutverki hjá Cleveland, skoraði 30 stig og átti 7 stoðsendingar. Doc Rivers, þjálfari Boston, sagði hinsvegar að það hefði verið Anderson Varejao, sem hefði verið sínum mönnum erfiðastur í leiknum, enda þótt hann hefði ekki skotið á körfu Boston í síðari hálfleiknum.

„Ef einn maður stjórnaði leiknum, þá var það Varejao. Hann berst um alla bolta, er á fullri ferð og pirrar mótherjana. Hann vinnur svo sannarlega sína vinnu," sagði Rivers. Ray Allen var stigahæstur í hans liði með 20 stig.

Dwyane Wade skoraði 38 stig fyrir Miami Heat sem vann Philadelphia 76ers, 104:91.

Kevin Durant skoraði 35 stig fyrir Oklahoma City Thunder sem vann Utah Jazz, 119:111.

Amare Stoudamire skoraði 36 stig og tók 12 fráköst fyrir Phoenix Suns sem vann New Orleans Hornets, 120:106.

Úrslitin í nótt:

Milwaukee - Indiana 98:94
Cleveland - Boston 104:93
Miami - Philadelphia 104:91
Orlando - Charlotte 89:96
Oklahoma City - Utah 119:111
Phoenix - New Orleans 120:106
Portland - Toronto 109:98
Sacramento - Minnesota 114:100

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is