Heather Ezell: Erfitt að byrja svona
Eftir Stefán Stefánsson, ste@mbl.is„Í hvert sinn sem við spilum við KR er mín gætt vandlega en ég vissi að það myndi líka gerast núna og undirbjó mig undir það en það er ekki alltaf auðvelt,“ sagði Heather Ezell úr Haukum eftir 78:47 tap fyrir KR í fyrsta undanúrslitaleik Íslandsmótsins í körfuknattleik.
KR var með 24:4 forystu eftir fyrsta leikhluta og það reyndist Hafnfirðingum erfitt að brúa.„Það getur allt gerst en KR-ingar komu tilbúnari, vildu frekar vinna en við á fyrstu tíu mínútunum og við gáfum þeim líka of mörg skotfæri og tækifæri til að hirða fráköstin, sem kom þeim í gang og skilaði forystunni. Við aftur á móti hittum illa og náðum okkur ekki gang svo við gerðum þeim þetta of auðvelt.
Síðan sýndum við þeim að við getum alveg keppt við þær, það fór ekki á milli mála í öðrum og þriðja leikhluta. Við þurfum að spila líka svoleiðis í fyrsta og fjórða leikhluta því það var erfitt að vinna upp tuttugu stiga forystu þegar leikurinn var varla kominn í gang - við reyndum samt að fara í eltingaleik en það gekk ekki upp.
Við þurftum að hafa mikið fyrir því að vinna niður forskotið í byrjun og annað hvort slökuðum við of mikið á eða urðum þreyttar en KR-ingar gerðu það sem til þurfti. Við getum ekki slakað á og mikilvægast er að við verðum að byrja af fullum krafti og ekki eyða allri orkunni í að vinna niður mikinn mun,“ bætti Heather við og telur ekki alla nótt úti enn.
„Þetta var erfiður leikur og erfitt að byrja svona í úrslitaleikjunum en það góða er að það þarf þrjá leiki til að komast áfram, við förum heim og byrjum að undirbúa okkur fyrir næsta leik. Við verðum að mæta í næsta leik með sama hugarfar og í öðrum og þriðja leikhluta því ef við tökum fyrsta og fjórða leikhluta í dag frá sést að við getum alveg keppt við þær og á miðvikudaginn ætlum við að gera það.“






