Boston í stuði en Lakers marði sigur
Boston Celtics og LA Lakers höfðust ólíkt að í nótt, enda þótt bæði hefðu unnið leiki sína í NBA-deildinni í körfuknattleik. Boston malaði Detroit Pistons, 119:93, en Lakers marði sigur á Golden State Warriors, 124:121.
Paul Pierce, Ray Allen og Michael Finley skoruðu 15 stig hver fyrir Boston og Kevin Garnett 14, og þeir höfðu nánast gert út um leikinn að loknum fyrri hálfleiknum.
Spennan var öllu meiri á heimavelli Warriors í Oakland þar sem heimaliðið skoraði níu stig í röð undir lokin og ógnaði sigri Lakers, en nýtti ekki tvö þriggja stiga skot þar sem möguleiki var á að knýja fram framlengingu. Kobe Bryant skoraði 29 stig fyrir Lakers og Stephen Curry 29 fyrir Warriors.
Aaron Brooks tryggði Houston Rockets sigur á Denver Nuggets, 125:123, með fallegu langskoti tveimur sekúndum fyrir leikslok. Hann skoraði 31 stig í leiknum. Carmelo Anthony mátti þar með sætta sig við að vera í tapliði þrátt fyrir að skora 45 stig fyrir Denver.
Úrslitin í nótt:
Philadelphia - New York 84:94
Boston - Detroit 119:93
Houston - Denver 125:123
Utah - Washington 112:89
Golden State - LA Lakers 121:124
LA Clippers - New Orleans 100:108






