KR komið í vænlega stöðu
KR stendur vel að vígi eftir tvo sigurleiki á Haukum í undanúrslitum úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik. Í kvöld unnu KR-ingar Hauka á Ásvöllum, 79:75. KR-liðið þarf nú aðeins einn sigur til viðbótar til þess að tryggja sér sæti í úrslitum gegn annað hvort Hamri eða Keflavík. KR og Haukar mætast þriðja sinni á heimavelli KR á föstudagskvöldið kl. 20.
KR-liðið er sterkara í fjórða leikhluta náði að tryggja sér annan sigur í einvígi liðanna og þar með góða í keppninn um sæti í úrslitum.
Haukar-KR 75-79
(15-27, 23-14, 18-16, 19-22).
Stig Hauka: Heather Ezell 31/11/5 stoðs., Kiki Jean Lund 16/4, María Lind Sigurðardóttir 11/12, Sara Pálmadóttir 9/5, Heiðrún Ösp Hauksdóttir 3/2, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 3/9, Guðrún Ósk Ámundardóttir 2/1, Dagbjört Samúelsdóttir 0/0, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 0/0, Helena Brynja Hólm 0/3, Margrét Rósa Hálfdánardótir 0/0, Telma B. Fjalarsdóttir 0/2.
Stig KR: Signý Hermannsdóttir 18/9/10 varin, Jenny Pfeiffer-Finora 14/2, Unnur Tara Jónsdóttir 12/6, Margrét Kara Sturludóttir 12/6, Hildur Sigurðardóttir 11/5/6 assists, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 10/6, Helga Einarsdóttir 2/2, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 0/2, Brynhildur Jónsdóttir 0/0, Heiðrún Kristmundsdóttir 0/0, Heiðrún Hödd Jónsdóttir 0/0, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 0/0.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Jóhann Gunnar Guðmundsson
Spennan heldur áfram í þriðja leikhluta sem Haukar vinna með tveggja stiga mun, 18:16. Aðeins munar einu stigi á liðunum fyrir síðasta leikhlutann, 57:56, KR í vil.
Eftir slakan fyrsta leikhluta bitu leikmenn Hauka í skjaldarrendur í öðrum leikhluta. Þeir jöfnuðu metin svo út varð jafn leikur. KR tókst að skora síðustu stig annars leikhluta og hafa fyrir vikið þriggja stiga forystu, 41:38, þegar flautað hefur verið til hálfleiks.
Fyrsta leikhluta er lokið. KR-liðið var mikið sterkara í honum og hefur 12 stiga forskot, 27:15, þegar annar leikhluti hefst.
KR byrjar leikinn betur á Ásvöllum. Þegar fyrsti leikhluti er rétt rúmlega hálfnaður hefur KR-liðið níu stiga forskot, 16:7.
Hægt er að fylgjast með lýsingu af vefsíðu KKÍ með því að smella hér.






