Cleveland tryggði sér sigur í Miðdeildinni

LeBron James. stækka

LeBron James. Reuters

Ellefu leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í gær. LeBron James skoraði 32 stig í 99:94 sigri Cleveland gegn Indiana. Þar með tryggði liðið sér  sigur í Miðdeildinni annað árið í röð. James gaf 9 stoðsendingar og tók 9 fráköst.

Vince Carter skoraði 24 stig fyrir Orlando í 110:84 sigri gegn San Antonio. Tim Duncan skoraði aðeins 2 stig fyrir San Antonio en hann hitti aðeins úr 1 af alls 10 skotum sínum utan af velli. Chris Bosh tryggði Toronto sigur gegn Atlanta en hann skoraði sigurkörfuna 2,1 sek. fyrir leikslok í 106:105 sigri. Þar með lauk fimm leikja taphrinu Toronto.

Chicago tapaði sínum níunda leik í röð og nú gegn Dallas. Aaron Brokks setti félagsmet hjá Houston með því að hitta úr öllum sjö þriggja stiga skotum sínum í 107:94 sigri gegn Memphis.

Úrslit frá því í nótt:

Charlotte - Oklahoma 100:92
Cleveland - Indiana 99:94
Toronto - Atlanta 106:105
Boston - New York 109:97
Orlando - San Antonio 110:84
Dallas - Chicago 113:106
Houston - Memphis 107:94
Utah - Minnesota 122:100
Golden State - New Orleans 131:121
LA Clippers -Milwaukee 101:93
 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar


finnur.is