Karl: Ánægður með fjóra sigra í röð

Karl Jónsson stækka

Karl Jónsson mbl.is

„Við ákváðum að fara í úrslitakeppnina á eigin forsendum og sigruðum í síðustu fjórum leikjum og ég er mjög ánægður með það,“ sagði Karl Jónsson, þjálfari Tindastóls, eftir sigurinn á Fjölni í kvöld.

„Sóknarleikurinn var full hægur í kvöld. Fjölnir er með öskufljóta kantmenn og við lentum í vandræðum með þá í kvöld. En við sýndum mikinn styrk eins og í undanförnum leikjum. Við höfum lent undir en náð að rífa okkur upp og sigra. Það er rosalega flott og fjórir sigrar í röð er gott veganesti í úrslitakeppnina.

Það varð að gera eitthvað og þess vegna breyttum við vörninni. Þegar hún smellur þá hefur það áhrif á sóknina, það kemur meira flæði og auðveldari körfur.

Ég held það hafi verið dálítið spenna í báðum liðum í kvöld og leikurinn einkenndist því kannski af taugaveiklun, enda talsvert mikið í húfi. Menn voru ragir við að taka áhættuna, en á einhverjum tímapunkti þarf að taka af skarið og við gerðum það á réttum tíma í kvöld.

Við mætum Keflavík í úrslitakeppninni. Þar er frábært lið á ferðinni en það sem er gleðilegt fyrir okkur er að við vinnum síðustu fjóra leikina þannig að það gefur okkur eitthvað. Þetta verða því í það minnsta þrír leikir,“ sagði Karl kampakátur með lokasprettinn hjá sínum mönnum í vetur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is