Michael Jordan keypti Charlotte Bobcats

Michael Jordan.

Michael Jordan. AP

Nefnd á vegum NBA deildarinnar í körfubolta hefur samþykkt að Michael Jordan fyrrum leikmaður Chicago Bulls og Washington Wizards, geti keypt meirihlutaeign í Charlotte Bobcats liðinu.

Nefndin tók einnig að sér að verðmeta félagið. Jordan þarf að greiða rúmlega 34,5 milljarða kr. til þess að kaupa liðið af Robert Johnson sem hefur tapað háum fjárhæðum á liðinu frá því hann keypti félagið árið 2002.  Jordan og Johnson hafa komist að samkomulagi um kaupin og mun Johnson halda eftir litlum hlut í félaginu.

Johnson keypti liðið á 37,6 milljarða en heildarskuldir Bobcats eru 12,5 milljarðar kr. Talið er að Johnson hafi tapað um 10 milljörðum á félaginu frá því hann eignaðist meirihluta í félaginu.

Jordan átti hlut í félaginu en hann hefur fengið hóp fjárfesta með sér í lið til þess að eignast liðið. Jordan hefur á undanförnum árum verið með puttana í ýmsum ákvörðunum félagsins og þar má nefna ráðningun á Larry Brown þjálfara liðsins og hvaða leikmenn hafa verið valdir í háskólavalinu.

Bobcats hefur leikið vel í vetur en liðið hefur unnið 34 leiki en tapað 32 og getur liðið komist í átta liða úrslit í Austurdeildinni í fyrsta sinn í sögu félagsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar


finnur.is