Spenna fyrir lokaumferðina í úrvalsdeild karla

Pavel Ermolinskij leikmaður KR. stækka

Pavel Ermolinskij leikmaður KR. mbl.is

Lokaumferð Iceland Express deildar karla í körfubolta fer fram í kvöld en þá fara fram sex leikir. KR og Grindavík eiga bæði möguleika á að tryggja sér efsta sætið og þar með deildarmeistaratitilinn. Fjögur lið berjast um tvö laus sæti í átta liða úrslitum. Breiðablik og FSu er fallin í 1. deild.

Snæfell og KR eigast við í Stykkishólmi og með sigri tryggir KR sér deildarmeistaratitilinn. Ef KR tapar hinsvegar og Grindavík leggur ÍR að velli í Seljaskóla þá verða Grindvíkingar deildameistarar.

Keflavík tekur á móti Hamri á heimavelli. Keflvíkingar geta tryggt sér annað sætið í deildinni með sigri en þeir verða fyrir ofan Grindavík ef liðin eru jöfn að stigum.

Baráttan um fjórða sætið verður hörð en þrjú lið eru jöfn að stigum, Snæfell, Stjarnan og Njarðvík.  Ef liðin vinna leiki sína í kvöld verður röðin þessi, Snæfell í fjórða, Stjarnan í fimmta og Njarðvík í sjötta sæti.

Tindastóll, ÍR, Hamar og Fjölnir eru í baráttu um tvö laus sæti í átta liða úrslitum. Staðan er nokkuð flókin en Tindastóll stendur best að vígi með 16 stig í sjöunda sæti. ÍR, Hamar og Fjölnir eru öll með 14 stig. Fjölnir og Tindastóll eigast við í kvöld og sá leikur skiptir miklu máli um hvernig lokastaðan verður í deildinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is