„Sterkt lið dettur út í 8-liða úrslitum“

Páll Axel Vilbergsson Grindavík og Emil Þór Jóhannsson Snæfelli í baráttu í bikarúrslitaleiknum. stækka

Páll Axel Vilbergsson Grindavík og Emil Þór Jóhannsson Snæfelli í baráttu í bikarúrslitaleiknum. mbl.is/Golli

Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur í körfuknattleik karla, segir það erfitt verkefni að mæta Snæfelli í úrslitakeppninni sem hefst eftir viku.

Grindavík hafnaði í 3. sæti en Snæfell í 6. sæti í deildinni.

„Snæfell er hrikalegt sterkt lið. Það er alveg ljóst að það verður sterkt lið sem dettur út í átta liða úrslitum, hvort sem það verða við eða þeir. Við erum með markmið í gangi og það er að verða Íslandsmeistarar. Það er ekkert launungamál. Til þess þurfum við að fara í gegnum Snæfell. Það verður erfitt enda svakalega gott lið,“ sagði Friðrik í samtali við mbl.is.

Liðin hafa tvívegis mæst á skömmum tíma. Snæfell hafði betur í bikarúrslitaleiknum og um daginn sigraði Grindavík í deildarleiknum í Hólminum. „Já við getum alveg unnið þá. Við verðum bara að hefna fyrir bikarúrslitaleikinn. Eina leiðin til þess að láta þau sár gróa er að vinna þá og slá þá út úr úrslitakeppninni,“ sagði Friðrik.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is