Teitur: Ég þekki alla í Njarðvík

Teitur Örlygsson þjálfari Stjörnunnar. stækka

Teitur Örlygsson þjálfari Stjörnunnar. mbl.is/Hag

Teitur Örlygsson þjálfari Stjörnunnar mætir sínu gamla félagi Njarðvík í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar í körfuknattleik karla. Hann kvíðir því ekki að fara í ljónagryfjuna í bláum búningi.

„Það getur svo sem vel verið að einhverjir taki því illa. Ég þekki alla í Njarðvík, bý í Njarðvík og krakkarnir mínir eru í félaginu. Það er fullt af góðu fólki hjá Njarðvík sem bera virðingu fyrir andstæðingunum. Við ætlum að láta þetta snúast um körfubolta en ekki fíflaskap eða læti. Þá erum við í góðum málum,“ sagði Teitur í samtali við mbl.is í kvöld og sagði jafnframt að Stjarnan væri í framför og gott væri að vinna síðustu tvo leikina fyrir úrslitakeppnina. 

Sigurður Ingimundarson þjálfar Njarðvík og hann er sáttur við að fá Stjörnuna. Njarðvík var sterkasta liðið í deildinni fyrir áramót en hefur ekki gengið eins vel eftir áramót. „Já það er alveg rétt að okkur hefur ekki gengið eins vel eftir áramót en þetta eru sex lið sem enduðu nánast í einum hnapp. Við erum því bara á sama stað og önnur lið. Þó við höfum endað í fimmta sæti þá var ekki langt í sætin fyrir ofan. Það skiptir því ekki máli þegar úrslitakeppnin byrjar því þá byrjar bara nýtt mót,“ sagði Sigurður þegar mbl.is ræddi við hann í kvöld. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is