Henning: Átti að hvíla lykilmenn

Unnur Tara Jónsdóttir KR og Telma B. Fjalarsdóttir Haukum í leik liðanna í kvöld. stækka

Unnur Tara Jónsdóttir KR og Telma B. Fjalarsdóttir Haukum í leik liðanna í kvöld. mbl.is/hag

mbl.is Eftir Stefán Stefánsson, ste@mbl.is

Henning Henningsson þjálfari Íslands- og bikarmeistara Hauka er kominn í sumarfrí eftir þriðja tapið fyrir KR í þriðja leik liðanna um sæti í úrslitum Íslandsmótsins en KR vann 63:61 í Vesturbænum.  Þjálfarinn var stoltur af liði sínu og tók á sig sök. 

„Ég er ótrúlega stoltur af mínum stelpum því þetta var frábær barátta og við vorum í raun óheppnin að vinna ekki leikinn en það sem gerðist í lokin var að lykilmenn liðsins voru orðnar þreyttar og ég gerði sjálfur mistök fyrr í leiknum að hvíla þá ekki í eina eða tvær mínútur til að fá síðan ferskar fætur inná  en stelpurnar voru eins og hetjur og ég átti að spila öðruvísi úr þessu. Við sýndum að við getum alveg spilað körfubolta og erum ekki með neitt slakara lið en KR, sem var þó einbeittari og náði þó að gera út um leikinn í lokin.  Svo er vörnin okkar, ég held að KR-liðin eigi ekki eftir að lenda í svona vörn aftur í vetur svo þær eru vel að sigrinum og eiga eftir að standa sig vel,“ sagði Henning í samtali við mbl.is eftir leikinn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is