KR sló Íslands- og bikarmeistarana út 3:0
Heather Ezell leikmaður Hauka reynir skot að körfu og Hildur Sigurðardóttir úr KR til varnar. mbl.is/Golli
Þriðji leikur KR og Hauka í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í körfuknattleik hófst í DHL-höllinni klukkan 19:15. KR sigraði 63:61 og 3:0 í rimmunni. Titilvörn Íslands- og bikarmeistara Hauka er því lokið. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
Atkvæðamestar:
KR: Margrét Kara Sturludóttir 15, Jenny Finora-Pheiffer 14, Signý Hermannsdóttir 13 fráköst.
Haukar: Kiki Lund 15, Heather Ezell 13, Telma B. Fjalarsdóttir 12 fráköst.
40. mín: LEIK LOKIÐ. KR tókst að kreista fram sigur 63:61 þrátt fyrir að vera undir mest allan leikinn. Íslands- og bikarmeistarar Hauka eru komnar í sumarfrí.
37. mín: Staðan er 59:55 fyrir Hauka þegar um þrjár og hálf mínúta eru til leiksloka. Spenna er hlaupin í leikinn því KR komst yfir 55:54 en Haukakonur hafa skorað fimm stig í röð og svöruðu þessu vel.
30. mín: Staðan er 44:51 fyrir Hauka að loknum þremur leikhlutunum. Hafnfirðingar eru enn með frumkvæðið. Ragna Margrét Brynjarsdóttir miðherji Hauka er farinn af leikvelli með 5 villur.
20. mín: Staðan er 34:26 fyrir Hauka að loknum fyrri hálfleik. Hafnfirðingar standa því nokkuð vel að vígi fyrir seinni hálfleik enda með bakið upp við vegg og verða að vinna leikinn. Hittni KR-inga er slæm eins og tölurnar gefa til kynna.
10. mín: Staðan er fyrir 11:8 Hauka. Gestirnir úr Hafnafirði ætla að selja sig dýrt í kvöld og eru með frumkvæðið. Það hlýtur að vera langt síðan að KR-liðið skoraði jafn fá stig í einum leikhluta. Besti varnarmaður KR Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir er kominn með þrjár villur nú þegar sem er alvarlegt mál fyrir KR því hún hefur iðulega það hlutverk að valda Heather Ezell.






