Leikdagar í átta liða úrslitum úrvalsdeildar karla

Átta liða úrslit úrvalsdeildar karla hefjast á fimmtudag í næstu viku. stækka

Átta liða úrslit úrvalsdeildar karla hefjast á fimmtudag í næstu viku. Árni Sæberg

Mótanefnd KKÍ hefur ákveðið leikdaga í átta liða úrslitum Iceland Express deildar karla. Tvo sigra þarf til þess að komast áfram í undanúrslit. Deildarmeistaralið KR mætir ÍR sem endaði í áttunda sæti á fimmtudaginn í næstu viku. Keflavík, sem endaði í öðru sæti, mætir liði Tindastóls sama dag. Grindavík og Snæfell sem enduðu í þriðja og sjötta sæti mætast föstudaginn 26. mars, líkt og Stjarnan og Njarðvík sem enduðu í fjórða og fimmta sæti.

KR-ÍR
Leikur 1: DHL-höllin, fimmtudagur 25. mars kl. 19.15
Leikur 2: Seljaskóli, sunnudagur 28. mars kl. 17.00
Leikur 3: DHL-höllin, fimmtudagur 1. apríl kl. 19.15, ef þarf.

Keflavík-Tindastóll
Leikur 1: Keflavík, fimmtudagur 25. mars kl. 19.15
Leikur 2: Sauðárkrókur, sunnudagur 28. mars kl. 19.15
Leikur 3: Keflavík, fimmtudagur 1. apríl kl. 19.15,  ef þarf.

Grindavík-Snæfell
Leikur 1: Grindavík, föstudagur 26. mars kl. 19.15
Leikur 2: Stykkishólmur, mánudagur 29. mars kl. 19.15
Leikur 3: Grindavík, fimmtudagur 1. apríl kl. 19.15, ef þarf.


Stjarnan-Njarðvík
Leikur 1: Ásgarður, föstudagur 26. mars kl. 19.15
Leikur 2: Njarðvík, mánudagur 29. mars kl. 19.15
Leikur 3; Ásgarður, fimmtudagur 1. apríl kl. 19.15, ef þarf

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is