Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 19.3.2010
| 8:03
Orlando og Denver á sigurbraut
Aðeins tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfuknattleik í nótt. Denver hafði betur gegn New Orleans 93:80 á heimavelli. Orlando hafði betur gegn Miami í framlengdum leik á útivelli í grannaslagnum á Flórídaskaganum 108:102.
Carmelo Anthony skoraði 26 stig fyrir Denver og tók 18
fráköst sem er persónulegt met. Þetta er áttundi sigur Denver í síðustu níu
leikjum en liðið er með næst besta árangurinn í Vesturdeildinni á eftir
meistaraliði LA Lakers.
Vince Carter skoraði 27 stig fyrir Orlando, Rashad Lewis skoraði 24 í 108:102
sigri. Orlando hefur unnið 10 af síðustu 11 leikjum sínum. Að venju var Dwyane
Wade allt í öllu í liði Miami en hann skoraði 36 stig og tók 10 fráköst.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






