Óvæntur sigur Þórs Þ. gegn Haukum

Semaj Inge, fyrrum leikmaður KR leikur með Haukum. Hann skoraði 11 stig gegn Þór Þ. stækka

Semaj Inge, fyrrum leikmaður KR leikur með Haukum. Hann skoraði 11 stig gegn Þór Þ. Kristinn Ingvarsson

Þór frá Þorlákshöfn lagði Hauka á útivelli í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta í kvöld í leik þar sem að varnarleikurinn var í hávegðum hafður. Lokatölur 56:55. Haukar skoruðu aðeins 6 stig í þriðja leikhluta og alls 17 stig í síðari hálfleik. Þórsarar skoruðu 19 stig í fyrri hálfleik. 

Þór er þar með yfirhöndina í einvíginu en tvo sigra þarf til þess að komast í úrslitarimmuna um laust sæti í úrvalsdeild. KFÍ hefur þegar tryggt sér sæti á meðal þeirra bestu en Haukar, Þór Þ., Valur og Skallagrímur leika í úrslitakeppni um laust sæti í efstu deild.

Óskar Ingi Magnússon var stigahæstur í liði Hauka með 15 stig og 4 fráköst. Grétar Ingi Erlendsson var stigahæstur í liði Þórs með 25 stig og 11 fráköst.

Haukar-Þór Þ. 55:56
(19:9, 19:11, 6:17, 11:19)

Haukar, stig/fráköst: Óskar Ingi Magnússon 15/4, Helgi Björn Einarsson 11/1, Semaj Inge 11/12/5 stoðsendingar/3 varin skot, Davíð Páll Hermannsson 6/3, Sævar Ingi Haraldsson 5/5/6 stoðsendingar, Örn Sigurðarson 4/3, Ingvar Guðjónsson 3/3, Sveinn Ómar Sveinsson 0/2, Alex Óli Ívarsson 0/0, Lúðvík Bjarnason 0/4, Emil Barja 0/1, Elvar Steinn Traustason 0/0.

Þór Þ., stig/fráköst: Grétar Ingi Erlendsson 25/11, Magnús Pálsson 14/5, Þorsteinn Már Ragnarsson 4/0, Valur Sigurðsson 4/4, Richard Field 4/16, Baldur Þór Ragnarsson 3/6, Ari Gylfason 2/2, Ágúst Örn Grétarsson 0/0, Davíð Þór Guðlaugsson 0/0, Bjarki Gylfason 0/0, Emil Karel Einarsson 0/0.

Dómarar: Kristinn Óskarsson, Davíð Kr. Hreiðarsson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is