Helena:„ Ég er rosalega stolt af mínu liði“

Helena Sverrisdóttir. stækka

Helena Sverrisdóttir. mbl.is/TCU

Ég er rosalega stolt af mínu liði þrátt fyrir tapið. Við börðumst af krafti og vorum  mjög nálægt því að komast áfram í 32 liða úrslitin. Það gekk því miður ekki eftir,“ sagði Helena Sverrisdóttir í samtali við mbl.is í kvöld en lið hennar TCU tapaði naumlega 67:66 gegn Dayton í 64 liða úrslitum NCAA deildarinnar í háskólakörfuboltanum í kvöld. 

„Það var gríðarlega gaman að upplifa þessa stemningu sem fylgir því að taka þátt í „Marsfárinu", (March madness). Það er mikill áhugi á þessari keppni og stemningin á leiknum var engu lík," bætti Helena við en hún var stigahæst í liði TCu með 17 stig og setti persónulegt met með því að taka 13 fráköst. Að auki gaf Helena 6 stoðsendingar. 

„Fyrir leikinn þá töluðum við um að til að vinna þyrftum að berjast og leggja meira á okkur en andstæðingarnir. Að mínu mati tókst okkur það, við spiluðum af krafti allan tíman. Við náðum 18 stiga forskoti þegar 13 mínútur voru eftir . Dayton liðið hitti úr nokkrum þriggja stiga skotum sem kom þeim inn í leikinn.  Þær léku góða svæðisvörn þar sem áherslan var lögð á að stöðva einstaka leikmenn.  Skotvalið á lokakaflanum var lélegt hjá okkur og sóknarleikurinn fór úr skorðum. Dayton komst yfir í fyrsta skipti í leiknum þegar 25 sekúndur voru eftir. Við náðum að svara því en þær komust yfir á ný þegar 17 sekúndur voru eftir. Sigurkörfuna skoruðu þær 1 sekúndu fyrir leikslok eftir mikla baráttu undir körfunni.  Það var ótrúlega sárt að tapa með þessum hætti," sagði Helena Sverrisdóttir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is